Ef myndin prentast vel þá biðjumst við afsökunar á því!
Formaður Timburmanna, sem er eins og allir vita, einn áhrifamesti áhrifavaldur landsins um þessar mundir birti, sem kunnugt er, myndir af sér í heitum potti þar sem hann var á G-streng svo sást í beran bossann. Myndbirting þessi fór fyrir brjóstið flestum, enda ….já það þarf svo sem ekkert að útskýra það frekar. Hinn víðfrægi söngvari Búbbi Monthens var einn af þeim sem hneykslaðist mjög á afturendabirtingu formannsins. “Já þetta var rossalegt, segi og skrifa rossalegt” – sagði Búbbi í afar einlægu viðtali við Timburfréttir. “Gæinn var bara bókstaflega á rassinum og það er aðeins of mikil boba fyrir mig sko!” Formaður Timburmanna vildi ekki tjá sig um málið þegar Timburfréttir náðu í ra***** á honum fyrr í dag, en hann sagðist vera upptekinn við aftansöng!
