Grínistinn og uppistandarinn Kim hinn ungi heimsótti karlakórinn Hermann á árshátíð þeirra nú á dögunum. Þetta mun vera fyrsta uppistand hans síðan Covidið hóf göngu sína. Að sögn fékk hann mjög góðar móttökur og samkvæmt heimildum Timburfrétta er á meðal kórfélaga talað um “algjöran killer”.
Kim lét hafa eftir sér í viðtali við Timburfréttir “þetta var dásamlegt. Svo gott að geta komið fram aftur. Allir voru kátir og tóku mér vel. Ég hef greinilega hitt á réttu brandarana” sagði hann, enn uppfullur af hamingju eftir vel heppnað show.
Það má sjá á meðfylgjandi mynd að mikil hefur gleðin verið, allir hlegið með.
