Formaður Timburmanna, sem jafnframt er áhrifavaldur, fer yfir upphaf Timburmanna gengisins og hvernig þessi hópur ólíkra Timburmanna hefur komið til með að vera.
Formaðurinn er nýjasti gestur hlaðvarpsins Timbumenn í anda og glasi, en þetta hlaðvarp hefur því miður ekki enn hafið göngu sína. Formaðurinn fer um víðan völl í samræðum við þáttastjórnendurna Dieter og Gunther. Hann ræðir um lífið sem áhrifavaldur og Timburmaður, og deilir skemmtilegum fróðleik um þennan vafalaust vinsælasta Timburmannahóp landsins.
Ekkert drama, bara gaman

Timburmenn eru alls nítjan talsins. Þeir eiga það sameiginlegt að tugir þúsunda landsmanna hefur væntanlega tekið sig saman um að fylgja þeim alls ekki á Instagram, vilja alls ekki vita allt um þá og alls ekki fylgjast með hverju skrefi þeirra. Þrátt fyrir að hópurinn hafi fyrst komið fram fyrir hryllilega löngu síðan þá tengdust þeir sterkum böndum og hefðu trúlega merkt sig hverjum öðrum til æviloka með húðflúri vinahópsins, ef þeir væru nógu vitlausir til þess.
Timburmenn eru líka menn
Formaðurinn segir að hann hafi nú ekki þekkt alla í hópnum á þeim tímapunkti sem þetta allt byrjaði. „Svo bara tengdumst við allir vel bæði í anda og í glasi og það var bara ekkert drama og allt gekk ógeðslega vel.“ Þeir fóru síðan að hittast oftar. „Svo varð þetta bara eitthvað grín. Skírðum hópinn okkar einhverju fyndnu nafni og nafnið Timburmenn er semsagt komið úr því. Svo hefur þessi hópur haldið samleið, alveg random hópur en það eru allir með sitt innlegg. Erum allir svo ólíkir, sérstaklega tveir af okkur.
