Eins og kunnugt er þá voru hlutabréf ríkisins í Íslambsbanka seld til valinkunnra Timburmanna sem valdir voru með handahófskenndu spillingarúrtaki. Bréfin voru seld með umfangsmiklum afslætti, eða eins og einn Timburmaður sagði: “Djös rosa díll mar!” Formaður Timburmanna, sem sjálfur keypti bréf fyrir heilan helling, hefur nú hvatt Timburmenn til að selja bréfin sín hið snarasta áður en upp kemst að um pínku smá spillingu hafi verið að ræða. Talið er að Timburmenn muni hagnast um mörg hundruð krónur á braski þessu, og ef myndin prentast vel þá má sjá nokkra Timburmenn glaðhlakkanlega á leið í bankann!

