Þar sem í ljós hefur komið að formaður Timburmanna virðist hafa gengið til liðs við uppreinsararm og nýliðahreyfingu klúbbsins, eins og áður hefur komið fram, spyrja eldri og miklu vitrari timburmenn sig þeirrar spurningar hvað hafi eiginlega komið fyrir formanninn. Margar kenningar eru uppi um ástæður þess að hann hefur ákveðið að snúa baki við sína fyrrum félaga og ber þar hæst sú kenning að hann hafi hreinlega verið heilaþveginn !

Úr herbúðum eldri og vitrari timburmanna er þó lítið gefið fyrir þessa söguskýringu, og heyrist þaðan að engar líkur séu á að formaðurinn hafi verið heilaþveginn, og fyrir því séu algjörlega augljósar ástæður !
