
(fréttir af heilaþvotti byggðar á misskilningi)
Eins og sést hefur á fréttasíðu(m) og samskiptamiðlum síðustu daga er eitthvað mikið að gerast í herbúðum Timburmanna. Miklar hræringar hafa átt sér stað og meðal annars talað um byltingu, uppreisn og heilaþvott.
Fréttastofa Timburfrétta vildi kafa dýpra í málið og leitaði uppi alla mögulega heimildarmenn (þennan eina sem stofan hefur). Vildi fréttastofan meðal annars reyna að komast að því hvort eitthvað væri hæft í sögum um meintan heilaþvott formannsins.
Hið rétta, samkvæmt heimildum Timburfrétta, er að formaðurinn var sviptur sjálfræði af öfgahópnum Ölgerðardeildin en sá hópur er hvað þekktastur fyrir að vilja halda merki ákveðins bjórs á lofti. Fræg eru t.d. mótmælin þeirra fyrir nokkrum misserum þar sem grímuklæddir meðlimir gengu um göturnar og góluðu “Gull, Gull og ekkert sull”.
“Það er því ekkert hæft í þeim sögusögnum að formaðurinn eigi einhvern beinan þátt í þessum breytingum sem nú eiga sér stað í starfi Timburmanna.” – segir heimildarmaður. “Hann er einfaldlega fórnarlamb” – ítrekar hann svo.
Samkvæmt sömu heimildum er ætlunin að fá formanninn til að “venjast” bragðinu af þessum merka bjór og í framhaldi sleppa honum aftur lausum svo hann geti “breytt út boðskapinn”.
Eftir stendur spurningin: Hvaða hópur er þessi Nýliðahreyfing eiginlega?
