Eins og kunnugt er þá kom fram misræmi í talningu nýyfirstaðinna kosninga í Út & suður kjördæmi, en þar er sem kunnugt er heimavígi Timburmanna. Í ljós hefur komið að yfirteljari kosninganna taldi öll atkvæði greidd Framsóknarfloknum sem auð, ógild, dauð og ómerk. Samkvæmt kosningalögum og stjórnarskrá má bara alls ekki gera það, jafnvel þó um Framsóknarflokkinn sé að ræða.
Yfirteljari kjördæmisins telur að tölur um talningar séu ekki teljandi mikilvægar og að óþarfi sé að telja að ranglega hafi verið talið þó að almennt sé talið að svo sé, enda er ekki teljandi þörf á að telja framsóknarmenn sérstaklega enda séu þeir taldir alltof oft og dagar þeirra brátt taldir.
Formaður Framsóknarflokksins telur að þetta sé alrangt og ofboðslega ósanngjarnt, því það sé rosalega ljótt að skilja útundan, jafnvel þó að um framsóknarmenn sé að ræða.

Staða málsins er sú í dag að yfirkjörstjórn fer með málið. Enginn veit hinsvegar hvert hún fór með málið og er því talið líklegt að brátt verði hafin leit að því.
