
Við árlega yfirferð áfengisbirgða samstæðu Timburmanna (Timburmenn Group) stemmdu tölur ekki við skráð bókhald þannig ákveðið var að endurtelja birgðirnar.
Segja má að allt sé nú komið í uppnám þar sem síðari talning skilaði allt annarri niðurstöðu en sú fyrri. Virðast birgðir hafa rýrnað enn meira en fyrri talning gaf til kynna.
Ekki er enn vitað nákvæmlega hvað veldur. Enn er beðið eftir að talningarmenn vakni af “værum blundi” en það virðist vera nokkuð algengt við þessa talningavinnu að talningamenn verði óskaplega þreyttir rétt eftir talninguna. Þrátt fyrir það er aðsókn í embætti talningamanna mjög eftirsótt af einhverjum sökum.
Þegar formaður félagsins er ynntur eftir svörum segir hann nú líklegast að það hafi gerst svipað og fyrir ári síðan þegar talningamenn misskildu hlutverk sitt og rugluðu saman talningu við gæðaeftirlit, þar sem menn taka út gæði veiganna. Það kunni líka að skýra þá stöðu að birgðir hafi rýrnað á milli talninga.
“En við reddum þessu, við setjum bara í gang þriðju talninguna… svona þegar menn vakna”.
