Þar sem kosningar eru nú á næsta leyti þótti ástæða til að kalla alla leiðtoga framboðanna saman og láta þá rífast eins og hund og kött, okkur hinum til takmarkaðrar skemmtunar. Kappræður þessar fóru fram í sjónvarpstækjum landsmanna þannig að sem betur fer gat fólk teygt sig í fjarstýringuna, skipt um stöð, slökkt eða bara hent sjónvarpinu sínu.
Eins og venjulega var niðurstaða kappræðna leiðtoganna nokkurn veginn á þessa leið: “Mín aðferð er best, allir hinir eru fávitar, en ég hef samt enga hugmynd hvernig ég ætla að fjármagna öll loforðin mín!”
Spyrill og þátttastjórnandi að þessu sinni var hinn eini sanni sjónvarpsmaður Heimskur Klár Pétursson og hafði hann að venju enga stórn á þættinum, aðstæðum, umræðunum né gleraugunum sínum.


