Svo gæti farið að ritstjóra Timbur-frétta verði vikið frá störfum vegna hæðar sinnar, eða öllu heldur vegna skorts á henni. “það er auðvitað alveg ótækt að hafa ristjóra á virtum miðli sem Timbur-fréttir eru sem ekki nær einu sinni upp á skrifborðið sitt öðruvísi en að nota tröppu” – sagði formaður Timburmanna í örsmáu viðtali vegna málsins. “Hann getur ekki einu sinni fengið sér kaffi hjálparlaust því hann nær ekki upp í kaffivélina. Hann prentar út endalaust af blöðum, en nær aldrei í þau í prentarann því hann nær ekki upp. Hann er svo lítill að þegar hann tekur viðtal við fólk þá talar hann við naflann á viðmælendunum. Hann er svo lítill að við verðum að láta hann sitja ofan á fundarborðinu á fundum svo að við vitum að hann sé mættur á fundinn. Hann er svo lítill að hann mætir alltaf órakaður í vinnuna, því hann nær ekki upp í spegilinn heima hjá sér. Hann er svo lítill að hann er varla hluthafi í Timburmönnum ehf, því hann á bara smáhlut. Hann er svo lítill að þegar hann fer á salernið til að pissa þarf alltaf að skúra gólfið á eftir!”

Svo mörg voru þau orð formannsins. Við fylgjumst náið með framvindu málsins, þó um einskonar smámál sé að ræða.
