
Eins og allir vita þá stendur nú til fagnaður mikill vegna opnunar nýrrar fluggrillsjoppu Timburmanna sem staðsett verður geysilega nálægt Geysi. Í ljós hefur komið eftir að fagnaðarerindi formannsins um fögnuðinn var gert heyrinkunnugt skráði sig til hófsins hinn svokallaði týndi Timburmaður. Timburmaður þessi er orðnn hálfgerð goðsögn í heimi Timburmanna enda hefur hvorki sést né heyrst til hans á hátíðum Timburmanna svo lengi sem elstu Timburmenn muna. Fáir muna eftir þessum umrædda Timburmanni, enda eins og áður segir alveg einstaklega týndur. Spennan magnast meðal Timburmanna vegna málsins, enda hafa Timburmenn ekki lent í öðru eins lengi lengi. Talið er að týndi Timburmaðurinn hafi týnst á svipuðum tíma og risaeðlurnar dóu út, þannig að ekki er á vísan að róa að Timburmenn, jafnvel elstu Timburmenn, muni bera kennsl á týnda Timburmanninn þegar hann loks mætir á svæðið. Rætt hefur verið um að selja inn á viðburðinn og munu miðar væntanlega koma í sölu bráðlega á Timburtix.is. Bein útsending verður frá komu týnda Timburmannsins á ölum helstu fréttaveitum landsins. Popp og kók selt við hurð.
