Hinir öldnu meðlimir hljómsveitarinnar Rolling Stones hafa nú sett enn eitt metið, en það er í formi þess að samanlagður aldur hjómsveitarmeðlima er orðinn yfir þúsund ár, – og geri aðrir betur.
“Já við áttum ekki von á þessu” – Sagði Mikki Jagger forsprakki hljómsveitarinnar aðspurður um þennan einstaka árangur, en hverju vill hann fyrst og fremst þakka þennan árangur ? “Jú það er nú fyrst og fremst vegna þess að við erum allir orðnir að minnsta kosti tvö hundruð og fimmtíu ára gamlir!” – Sagði Mikki að lokum á harðahlaupum á leið í föndurstund, enda er hann einnig formaður eldri rokkborgara í Bretlandi. Mikki gaf sér þó tíma til að sijta fyrir á einni mynd fyrir Timbur-fréttir hvar hann skartar forláta húfu sem hann prjónaði að lang mestu leyti sjálfur.
