Ekki er því að neita að hátt hefur borið á gagnrýni á eldgosið í Reykjanesskaganum síðustu vikur og hafa þeir sem lagt hafa leið sína þangað sinna venjulegu erinda borið sig illa. “Þetta er alveg glatað” er haft eftir einum gestinum að gosinu, “gosið er orðið svo lélegt að maður er alveg hættur að geta grillað pizzur á því, og nú getur maður ekki einu sinni kveikt sér í sígarettu!” Félag eldgosaelskenda hefur meðal annars sent kvörtun til ríkisstjórnarinnar og krafist tafarlausra aðgerða til að stemma stigu við ónýtu og gagnslausu eldgosi. Formaður félagins, Eldar Bjarmi Logason segir að það sé bara ekkert hægt að gera skemmtilegt hjá gosinu lengur þar sem það er orðið svo aumingjalegt. “Maður getur ekki einu sinni farið í fótabað þarna lengur!” Sagði Eldar öskureiður. Forsætisráðherra sagði aðspurð í eldheitu viðtali um málið að hún hafi falið fráfarandi stjórn KSÍ að athuga hvort hressa megi upp á gosið með einhverju móti, enda séu þau ekki neitt upptekin um þessar mundir og þess alvön að kveikja elda.
