Eins og kunnugt er þá gerðu meðlimir gömludansahljómsveitarinnar Gatara allt vitlaust í síðustu Eurovisionkeppni. Það mættu t.d. vitlausir hljómsveitarmeðlimir á svið, þeir fluttu vitlaust lag og vitlausan texta, auk þess sem þeir voru í vitlausum búningum og já voru bara með almennan vitleysisgang.
Fyrir alla þessa vitleysu þá fengu meðlimir Gatara sekt sem nemur fimm þúsund krónum, sem þeir gátu auðvitað ekki borgað og hafa þeir því síðan setið í græna herberginu og munu ekki sleppa þaðan fyrr en sektin er að fullu greidd. Þeir hafa meðal annars leitað til Timburmanna um fjárstuðning og sendu þeir þessa mynd til Timburmanna með von um stuðning.
Formaður Timburmanna segir að mál Gatara verði tekið fyrir næst þegar hann nennir, sem gæti hugsanlega orðið einhverntíma eða kannski síðar jafnvel. þangað til senda meðlimir Gatara bestu kveðjur heim !
