Eins og allir muna söng Einar Áttavillti lagið “Þú vilt ganga þinn veg” inn á 45 snúninga hljómplötu árið 1973 þá barn að aldri. Þessi plata varð metsöluplata en Einar Áttavillti hvarf svo í kjölfarið og til hans hefur ekkert spurst síðan.
Við tiltekt í kjallara í Antik búðinni á Skólavörustíg fannst svo Einar
Áttavillti nú 46 árum síðar og var hann bara hinn hressasti að sögn. Aðspurður hvað hann hyggðist nú taka sér fyrir hendur sagði hann að það lægi nú ekkert annað fyrir en að halda áfram að vera barnastjarna, það er jú það eina sem hann kunni að gera.
