
Eins og kunnugt er þá er alveg bannað að taka með sér gæludýr í strætó hér á landi og hefur þessi háttur vitanlega komið mjög illa niður á gæludýraeigendum sem ekki hafa eigin bíl til umráða og verða því að treysta á almenningssamgöngur. Sigvaldi Schött, gæludýraeigandi hafði samband við tíðindamann Timbur-frétta og sagði sínar farir ekki sléttar. “Ég á gæludýr sem er úlfaldi” – sagði Sigvaldi. “Og samkvæmt þessari bjánalegu reglugerð þá get ég ekki farið með úlfaldann minn í strætó, sem er náttúrulega bara fáránlegt. Það sér hver bjáni að úlfaldinn minn passar ekkert í neinn venjulegan Yaris, en hann smellpassar með glans inn í stóran gulan strætó með tveim topplúgum!” – Sagði Sigvaldi að lokum óhress mjög. Því miður náðist ekki í forstjóra Strætó við vinnslu þessarar fréttar, þar sem hann var staddur í Húsdýragarðinum og alveg upptekinn.
