Justin Bieber sem halda átti stórtónleika í félagsheimili Bíldudals á næsta miðvikudag varð því miður að afboða sig vegna hælsæris. Formaður skemmtinefndar Bíldudalshrepps hafði strax samband við formann Timburmann til að athuga hvort hægt
væri að redda afleysingamanni með svo skömmum fyrirvara. Það er skemmst frá því að segja að Timburmenn höfðu samband við heiðursfélaga sinn, hinn heimsþekkta skemmtikraft Gunther, og hann er nú þegar á leiðinni vestur á firði á hestbaki. Gunther þarf nú varla að kynna fyrir heimsbyggðinni og ætlum við þessvegna alveg að sleppa því. Miðaverð er kr. 800 og greiðist að fullu við hurð. Rauð aðgangskort gilda og það verða sætar ferðir frá BSÍ að venju.
