Heyrst hefur að framundan sé hin árlega glasahátíð Timburmanna, en þangað er eingöngu boðið úrvalsliði Timburmanna, hin svokallaða “elíta”. Einungis má þar finna þá Timburmenn sem
skarað hafa fram úr öðrum í glasalyftingum á árinu og helst þá sem sett hafa met af einhverju tagi í greininni. Að sjálfsögðu er viðburðurinn lokaður fjölmiðlum, mökum og öðrum óþarfa, og þessvegna má gera ráð fyrir að þetta verði hin besta skemmtun.
