Fulltr
úar Timburmanna eru komnir í undanúrslit í ólympíuleikum stórdrykkjumanna sem haldnir eru í Vatíkaninu nú sem endra nær enda hvergi eins gott úrval af guðaveigum.
Guðmundur K. Þambann tók sig til og staupaði sig alla leið í 5. sæti í þeirri merku grein, staupahámun. Hann sló eigið landsmet í leiðinni sem er einstaklega ánægjulegt.
Ljóst er að Þambann er í hörkuformi því hann krækti sér í gull í “Koníak á klukkustund” keppninni í fyrradag. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er hann sko sáttur með það. – Og við öll að sjálfsögðu líka.
