Lögfræðideild Timbumanna hugleiðir hvort ástæða sé til að leita réttar samtakanna vegna ósvífinnar útgáfu verslunarkeðju einnar sem selur spýtur og annað drasl.
Það eru að vísu mörg ár síðan útgáfa þessi átti sér stað, en þar sem lögfræðideild Timburmanna hafði ekki aðgang að internetinu (sem er bara bóla) fyrr en nú nýlega þá höfðu menn þar á bæ einfaldlega ekki komið auga á þetta fyrr. Hér er um að ræða meint kennslumyndband í Timburmennsku ! …Hverju finna þeir uppá næst eiginlega?
