Öðlingarnir í kjararáði fengu það þjóðráð að hækka örlítið laun okkar embættismanna Timburmanna. Þetta þýðir nú ekkert meira
en það að við fáum allir tíu milljónum meira á mánuði, nýjan bíl, hjólhýsi og bát til umráða, auk þess sem við fáum glænýja Nike skó, hjólbörur og Pokemon Go spilið. Það er nú allt og sumt ! Heyrst hefur að hinn almenni Timburmaður sé eitthvað ósáttur við þessa ráðstöfun kjararáðs, en við embættismenn Timburmanna skiljum ekkert í svoleiðis nöldri. Lengi lifi kjararáð Timburmanna !
