Lilli Api, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupsings hefur óskað eftir því hjá Rakarastofunni Klapparstíg að bú hans verði tekið til persónulegra gjaldþrotaskipta. þetta staðfesti Lilli Api í samtali við Timburfréttir.
Lilli Api var í febrúar síðastliðnum dæmdur í fjögurra ára fangelsi í “algjöru-tan” málinu svokallaða þar sem fjórir af forsvarsmönnum bankans hlutu þyngstu dóma sögunnar í efnahagsbrotamáli, samtals 18 ára dóm. Lilli Api afplánar nú dóm sinn á Kvíabryggju líkt og hinir Kaupsingsmennirnir fyrrverandi, Kasper, Jesper og Jónatan. Ekki liggur ljóst fyrir hvort héraðsdómur hafi úrskurðað um beiðni Lilla Apa sem lögð var fram á dögunum. En Timburfréttir hafa þó heimildir fyrir því að leit standi yfir að skiptastjóra sem er nógu vitlaus til að taka þetta að sér.
