
Vera Justin Bíber á Íslandi kom ekki í veg fyrir að illa færi fyrir þýska bílaframleiðandanum Volkswagen í risastóru hneykslismáli sem nú tröllríður fjölmiðlum víða um heim. Komið hefur í ljós að bifreiðar framleiðandans eru í raun ekki bifreiðar heldur bátar ! “Hvimleið mistök” – sagði Báden Wagen forstjóri VW í yfirlýsingu sem fyrirtækið sendi frá sér fyrir skemmstu. Ef undirvagn bifreiðanna er skoðaður kemur í ljós kjölur, botntankar og jafnvægisuggar, en slíkan búnað má yfirleitt ekki finna á bifreiðum almennt. “Þetta á sér allt sínar eðlilegu skýringar” sagði forstjórinn í mögnuðu viðtali. “Við fengum nýjan kjölfestufjárfesti að fyrirtækinu og við höfum verið svolitið uggandi síðan !”
