
Litlu mátti muna að illa færi þegar Timburmaður einn fékk á sig leka á þriðja tímanum í dag. Við skulum bara kalla þennan Timburmann Ásbjörn. “Já þetta var alveg rosalega mikið rosalegt” – sagði Ásbjörn í hripleku samtali við Timburfréttir rétt í þessu. “Ég var bara að labba á Laugaveginum þegar það kom þessi líka rosalegi leki að mér, svo að mér varð bæði um og ó. Sem betur fer voru þarna nokkrir kínverskir túristar sem hófu þegar að ausa mig í bak og fyrir, og það hefur trúlega bara bjargað lífi mínu!” – Ásbjörn bað fyrir góðar kveðjur til bjargvætta sinna. “Ég veit ekki hvað þeir heita nema einn þeirra heitir Hang Sökk. Þetta eru frábærir gaurar, skil ekki afhverju borgarstjórinn hefur svona mikið á móti þeim!”
