Á skerinu um þessar mundir er engin annar en hin ótrúlega stórstjarna Justin Bíber. Hann fer um landið með fríðu föruneyti, eins og gengur með stórstjörnur af þessari stærðargráðu (og þá er ekki verið að miða við hæð, þar sem hann er um það bil einn og ekkert á hæð.) Prófarkalesari Timburfrétta, er sem kunnugt er æstasti Bíber aðdáandi norðan Alpafjalla og hefur hann elt stjörnuna hvert fótmál frá því goðið steig á land í Keflavík.

“Þetta er rosalegt!” – Sagði prófarkalesarinn rétt í þessu í símaviðtali. “Hann er bara svo falleg manneskja, og svo er hann sexý og fallegur, og huggulegur og fallegur og skemmtilegur og fallegur og vel gefinn og fallegur og vel greiddur og fallegur og og og… – var ég búinn að segja hvað hann er fallegur ?”
Nú nýverið sást til Bíbers á almenningssalerni á Hlemmi og segja viðstaddir að hann hafi gert númer tvö. Þúsundir aðdáenda streyma nú að Hlemmi til að freista þess að ná restinni af lyktinni sem goðið skildi eftir sig.
