
Samkvæmt tíðindum Timbur-frétta þá fer þingkonan Elín Hrist huldu höfði þessa dagana, en ummæli hennar um sjálfstæðismennina Davíð Oddsson og Ólaf Ragnar Grímsson í síðustu viku féllu í heldur grýttan jarðveg. Einn gamalreyndur sjálfstæðismaður sagði að það væri algjörlega fyrir neðan allar hellur að tala illa um Davíð Oddsson, en sýnu verra væri þegar þessi manneskja væri farin að tala niður góða og gilda sjálfstæðismenn eins og Ólaf Ragnar Grímsson þá væri mælirinn jafn fullur og almennur Timburmaður eftir nokkra Tequila snafsa !
