Rauðhærði þingmaðurinn Freyr Haraldsson hefur krafist þess að öllu inniviði á hinu háa alþingi verði breytt í samræmi við háralit hans. “Það er óþolandi að þurfa að fara á bak við brúnt og ljótt ræðupúlt og þramma um á grænu gólfi, en allir vita að hvorugur þessara lita passar við rautt.” – Sagði þingmaðurinn í samtalið við Timbur-fréttir. “Ég
geri einnig þá kröfu að allir aðrir þingmenn klæðist að minnsta kosti einni rauðri flík á alþingi, og eins krefst ég þess að þjóðfána okkar verði breytt þannig að rauði liturinn verði algjörlega afgerandi héðan í frá ! – Það myndi svo varla drepa forseta alþingis að berja í púltið með rauðum hamri, en þeir fást fyrir lítið í Verkfæralagernum !”
