samþykkt var á fundir borgarráðs fyrr í morgun að hætta nú þegar að kaupa fisk úr sjó hjá öllum deildum borgarinnar. Ákvörðun þessi er tekin í mótmælaskyni þar sem umræddur sjór liggur jú að mörgum stríðshrjáðum löndum og því mjög líklegt að einhverjir af þeim fiskum sem keyptir hafa verið hingað til séu gjörspilltir stríðsfiskar.

Borgarstjóri sagði í viðtali við Timburfréttir að hann hefði bara verið að tjilla og skoða landakort og svona þegar hann allt í einu áttaði sig á alvarleika málsins. “Ég meina þetta er sami sjórinn mar, ég bara fattaði það ekki fyrr en núna, við getum ekki átt það á hættu að borða fisk sem kannski hefur synt fram hjá Sýrlandi, hvort sem það er sumar þar eða ekki mar !”
