
Eins og mjög fáir vita þá rekur hann Dolli útvarpstöðina Radío Iceland, en kunnugur segir að á þessari stöð séu fluttar fréttir á engilsaxneskri tungu fyrir erlenda gesti landsins. Því miður hefur aldrei neinn hlustað á þessa stöð og er því ekki hægt að staðfesta að þessi útvarpstöð sé raunverulega til eða ekki. Og þar sem ekki er hægt að staðfesta að útvarpsstöðin sé raunverulega til þá er vitanlega ekki hægt að staðfesta að þar starfi neitt starfsfólk, og fyrst það er ekki víst þá er auðvitað ekki hægt að borga þessu ímyndaða starfsfólki laun. Með þessu fyrirkomulagi hefur Dolli, að sögn, sparað heilmikil útgjöld, sem annars færu í vita tilgangslausar og hundleiðinlegar launagreiðslur, eins og Dolli sagði sjálfur í viðtali við tíðindamann Timbur-frétta.
