Bjarni Ben, fjárlagaráðherra, steig á svið í Hörpunni í gær og söng fjárlögin í heild sinni, sem þykir nú bara töluvert afrek. Bjarni kláraði gjörninginn á metttíma, og nú er þess beðið með eftirvæntingu hvort um hafi verið að ræða heimsmet, norðurlandamet, eða bara algjört met. Bjarni gat því miður ekki mætt í viðtal við tíðindamann Timburfrétta þar
sem hann er vita raddlaus eftir herlegheitin. Fjárlögin munu koma út á geisladisk fyrir jólin og verður þeim dreift frítt til aldraðra og öryrkja ! Nei djók ! Bankastarfsmenn og allir aðrir sem hafa yfir milljón á mánuði fá frítt eintak, en öldruðum, öryrkjum, örventum, rauðhærðum, og öðrum minnihlutahópum gefst kostur á að kaupa diskinn á raðgreiðslum, það er að segja ef þeir komast í gegnum greiðslumat !
