Tíðindamaður Timbur-frétta náði tali af Ólafi Ragnari nú fyrir skömmu og spurði hann spurningarinnar sem allir eru að spyrja þessa dagna. Ætlar þú að gefa kost á þér til endurkjörs í embætti forseta Íslands ? Svarið var á þessa leið: “Já þegar spurt er hvort
ég muni gefa kost á mér til áframhaldandi setu á Bessastöðum þá má gera ráð fyrir að svar mitt verði á einn eða annan hátt. Það er allsendis óvíst hvort það er nokkuð víst að svo sé, nema kannski eða hvorutveggja, nú eða bara annað hvort. Ákvörðun mín kann að liggja fyrir, nema að hún geri það bara ekki, en vandi er um slíkt að spá. Svar mitt er því alveg ljóst, nema dökkt sé.”
