Formaður Timburmanna hefur nú staðið ótrauður í biðröð á fjórðu viku fyrir framan fyrirhugaða vínbúð sem opna mun í Spönginni í Grafarvogi innan tíðar. Formaðurinn kvaðst aðspurður ætla að verða fyrsti viðskiptavinur verslunarinnar, hvenær sem hún
svo opnar. Þess má geta að enn er ekki búið að taka ákvörðun um fyrirhugaðan opnunardag og segir Ámundi Bakkus Morganson, forstjóri ÁTVR ekki einu sinn vera byrjað að innrétta hina nýju verslun ennþá. “Það skiptir engu máli hvenær þeir opna” -sagði formaðurinn ofsakátur rétt í þessu: “Þegar þeir opna þá verð ég hér tilbúinn að versla, ekki vandamál ! – Heyrðu annars, ertu nokkuð með klósett á þér ?”
