Það er mikill og rangur misskilningur uppi um hver hafi í raun og veru uppgötvað hinn geðþekka þjálfara, Lars Lagerbeer og fundið uppá því að flytja hann til landsins og brúka hann til þjálfunar sparksjúkra karlmanna á besta aldri. Til sögunnar hafa verið nefndir menn eins og Sigmundur Davíð, Hannes Hólmsteinn, Bubbi Morthens, Bubbi
Byggir og Hörður Torfa í þessu sambandi. En það upplýsist hér með að í raun og veru voru það Timburmenn sem fluttu inn Lars Lagerbeer í fyrstu, en það var þó á röngum misskilningi byggt. “Við héldum að þetta væri ný tegund af bjór” – Sagði formaður innflutningsráðs Timburmanna aðspurður. “Svo var þetta bara gamall karlfauskur, svo við skildum hann bara eftir á næst fótboltavelli, svo vitum við ekki meir !”
