Ný skoðanakönnun var gerð í dag á fylgi stjórnmálaflokkanna á vegum Fréttasnepilsins. Slembiúrtakið var samtals 8 manns, enda er orðið svo rosalega dýrt að hringja í dag. Framsóknarflokkurinn fékk eitt mínusstig, Guðmundur Steingrímsson fékk samtals 0 atkvæði, Sjálfstæðisflokkurinn fékk eitt og hálft atkvæði, Samfylkingin fékk 1 atkvæði ef þeir myndu lofa því að setja Jóhönnu á eftirlaun bara helst strax, og síðast en ekki síst fékk Lilja Mósesdóttir áttahundruðþrjátíuogsex atkvæði !
Skoðanakönnun þessi hefur þegar verið kærð. Kærandinn er Páll Óskar sem krefst þess að Ísland dragi sig út úr stjórnmálabulli og þvaðri og leggi þess í stað meiri pening í uppbyggingu í Azerbajan og að við reynum nú að finna þó ekki væri nema eitt gott lag til að senda í Júróvision !
