Í morgun varð eitrunar vart í Reykjavíkurborg. Í fyrstu var talið að Ammoníak hefði lekið úr tanki og voru hús og fyrirtæki í grenndinni rýmd í snarheitum. Fljótlega kom þó í ljós að eitrunin kom frá borgarstjóranum í Reykjavík sem var þarna í nágrenninu að hella úr viskubrunni sínum. Slík eitrun er mun alvarlegri en nokkur önnur og voru því enn fleiri hús rýmd þegar ljóst var hvers eðlis málið var. Borgarstjóri hefur verið beðinn um að halda sinni visku fyrir sig hér eftir, í nafni almannaheilla !
