Aðilar vinnumarkaðarins hafa samið upp á nýtt eftir að Akureyrarbær veitti Snorra í Betel þá hæfilegu refsingu að senda hann heim á fullum launum í sex mánuði ! …Mátulegt á hann !
Hér eftir verða allir starfsmenn sem hafa óþægilegar skoðanir, brjóta af sér í starfi, eru með táfýlu, eru rauðhærðir, nú eða eru með önnur almenn leiðindi, – sendir umsvifalaust heim með skömm og á fullum launun í sex mánuði.
Gert er ráð fyrir að innan tveggja vikna verði allir íslendingar heima hjá sér í góðu yfirlæti !
Guð blessi Ísland !
