Eins og allir vita fara landsmenn í bunkum til Búdapest til að fá sér nýjar tennur, konur fara til Silicon Valley og fá sér ný brjóst, og karlmenn fara til Thailands til að kaupa sér nýjar konur, og svo framvegis. En nú er alveg nýtt tískufyrirbrigði að ryðja sér rúms, en það er að skella sér til Singapore til að ná sér í greind, semsagt gervigreind!
Timburmaður einn sem ekki vildi láta nafn síns getið sagði við Timbur-fréttir að hann sé allur annar maður eftir að hann lét skipta út sinni eigin greind fyrir gervigreind á dögunum. “Já þetta er allt annað líf, nú veit ég ekkert í minn haus eins og áður, hef enga hugmynd hvort ég er að koma eða fara eins og áður, skil ekki baun eins og áður og er alveg tómur í hausnum eins og áður! – Allt annað líf!!”

