Flestir dagar eins, óskemmtilegt og lítið gefandi starf með fullum körlum. Hentar bindindisfólki ekki vel.
Viltu vera partur af frekar leiðinlegum og nöldrandi hópi? Viltu hjálpa fullum körlum að blanda sér drykk, halda á glasinu sínu og jafnvel aðstoða við að fá sér sopa?
Á frístundaheimili Timburmanna vinnur hópur fólks á öllum aldri með allskonar bakgrunn að því að stuðla að óstöðvandi drykkju og fleiri leiðindum með það meginmarkmið að koma í veg fyrir að þessi hópur manna valdi meira tjóni í samfélaginu en nauðsynlegt er.
Hvernig nýti ég áhugamál mín í vinnunni?
Sennilega ekki á nokkurn hátt. Nema þú sért áhugamanneskja um góðar kokteilblöndur, hafir gaman af því að hlusta á útjaskaða eightís tónlist eða njótir þess að hjálpa fullu, rétt rúmlega miðaldra, fólki að fara óstöðugt að sofa.
Passa ég inn þarna?
Nei, líklegast ekki.
Hvernig sæki ég um?
Þú sendir póst á fristundaheimili@timburmenn.is
Mundu að það getur liðið ansi langur tími þangað til svörun á sér stað þar sem það er afskaplega sjaldgæft að nokkur sé með rænu á að athuga pósthólfið.
