Ásgeir Seðill, seðlabúntstjóri ríkisins hefur í dag ákveðið að lækka vexti til að allir geti nú verið glaðir og hressir svona í sumar af því að það er sól og svoleiðis.
“Já við í seðlabúntsnefnd ákváðum í morgun að lækka bara vextina um fimm prósent og þar með er vaxtastig í landinu vera 2,5% sem er bara frábært!” – sagði Ásgeir Seðill í viðtali við Timbur-fréttir í morgun.
“Það eru frábærar fréttir” – sagði fréttasnápur Timbur-frétta, “en er bara alveg hægt að lækka vextina svona mikið?”
“Nei nei auðvitað er það alls ekki hægt og ekki nokkuð vit í því” -svaraði Ásgeir. “Þessvegna ákváðum við að hækka strax aftur vextina um heil fimm prósent, til að rétta af þessa endemis vitleysu!”
Svo mörg voru þau orð! Myndin hér fyrir neðan er af seðlabúntstjóranum í þungum þönkum. Hann segir ákvörðun sína meitlaða í stein!

