
Sesame Street tölvuþrjótum tókst að brjótast inn á síðu Timburmanna í gærdag. Þar settu þeir inn myndbönd sem stranglega eru leyfð börnum.
Þeir sem ætluðu til dæmis að horfa á harðsvíraða útsendingu frá bjórdrykkjukeppni aldraðra endurskoðenda, sem haldin var í Svíþjóð seinnipartinn í gær, fengu í staðinn dágóðan skammt af óviðeigandi efni Sesame Street.
Vegna þessa var síðunni lokað um tíma á meðan verið var að hreinsa hroðann út af henni.
Aðstandendur timburmenn.is biðjast innilega afsökunar á þessari uppákomu.
