Heilbrigisráðherra hefur gefið út reglulega flotta reglugerð um afléttingu sóttvarna á næstu dögum. Reglugerðin byggir eins og venjulega á tillögum skondna púkans Sóttólfs sem skrifar gjarnan sínar tillögur á minnisblað. Tillögurnar eru að þessu sinni sáraeinfaldar eins og venjulega og eru sem hér segir í stuttu máli:
500 manns mega koma saman, nema það séu einhverjir rauðhærðir í hópnum en þeir teljast þá ekki með nema þeir séu líka örvhentir, en þá teljast þeir sjálfkrafa með nema þeir hafi vottorð í leikfimi. Ef einhverjum í hópnum leiðist þá verður tafarlaust að skipta öllum hópnum upp í nokkur hólf og þvo þá vandlega, svona einskonar sápuhólf.
Grímuskylda verður á öllum viðburðum nema það séu sviðslistaviðburðir með sannsögulegu ívafi og/eða að leikarar í viðkomandi viðburði séu allir með nýburstaðar tennur. Falskar tennur teljast ekki með nema þær séu minna en fimm ára gamlar. Þetta á að sjálfsögðu ekki við ef einhver í hópnum á gæludýr, þá er ekki grímuskylda nema það sé komið kvöld og úti sé veður vott. Allir sem heita Grímur þurfa að nota grímur, nema þeir séu bara að djóka.
Allir sem ætla að mæta eitthvert verða að fara í hraðpróf, sjálfspróf, CPR próf og skyndipróf, nema þeir hafi bílpróf, þá þurfa þeir bara að fara í ofnæmispróf það er að segja ef þeir hafa að minnsta kosti fimm háskólapróf.
Fyrst um sinn verða þessar reglur í gildi eftir hádegi alla virka daga, nema mánudaga til föstudaga, en þá verður í lagi að fara ekki eftir þessum reglum, nema auðvitað að það sé fullt tungl. – Guð blessi Ísland !
