Hin ástæla sænska þjóðlagahljómsveit ABBA reis sem kunnugt er upp af værum blundi fyrir skemmstu og tilkynnti að ný plata væri væntanleg, þ.e.a.s. ef maðurinn með ljáinn leyfir. ABBA var, eins og allir vita sem eru orðnir meira en hundrað ára, ógurlega vinsæl meðal gamals fólks um eða eftir miðja síðustu öld eða svo. Því miður eru allir meðlimir ABBA löngu látnir en sérfæðingum á öldrunarsviði hefur tekist að gæða múmíur þeirra lífi og hrista úr þeim glænýja gamla smelli. Einnig stendur til að senda múmíurnar í tónleikaferð sem mun bera yfirskriftina “að handan”. 
