Versunarstjóri Costco hafði samband við Timbur-fréttir og vildi leiðrétta leiðan misskilning sem orðið hefur varðandi jólaskrautið sem búið er að setja upp í versluninni. “Já mér þykir þetta rosalega leitt” -sagði verslunarstjórinn í jólalegu viðtali við Timbur-fréttir. “Við höfum verið ásakaðir fyrir að koma seint inn með jólaskrautið í ár, en það kom ekki inn fyrr en í lok ágúst. Sannleikurinn er hinsvegar sá að jólaskrautið sem við settum inn núna er alls ekki hugsað fyrir næstu jól, heldur þarnæstu jól !” Verslunarstjórinn vill árétta við viðskiptavini sína að kaupa alls ekki þetta jólaskraut fyrir næstu jól, því Costco sé alltaf svo langt á undan öllum öðrum að jólaskrautið núna sé fyrir jólin 2022 ! Gleðileg næstu jól !

