Gagnrýnandinn góðkunni, Jón Viður (heiðurfélagi Timburmanna nafnsins vegna) sem er heimsfrægur um megnið af Íslandi hefur sent frá sér tímamótagagnrýni á nýtt verk sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu um Rómeó og Júlíu. Verkið er að sögn Jóns Viðs alveg glænýtt og samið af einhverjum Shakespeare gaur í einhverju landi fyrir skemmstu. Gagnrýni Jóns Viðurs þykir sérstaklega framúrstefnuleg og góð þar sem hann hefur ekki einu sinni séð sýninguna sjálfur. “Já nei nei ég er orðinn svo vanur þessu að ég þarf alls ekki lengur að mæta á sýningarnar til að ausa yfir þær drullu” – sagði Jón Viður í gangrýnu viðtali við Timbur-fréttir. “Ég nem það langar leiðir að þessi sýning er ósköp klén í alla staði, þó svo að ég hafi ekki séð hana, enda hvaða fáviti lætur leikrit heita Rómeó og Júlía ? Ég bara spyr ! Þetta eru ekki einu sinni falleg nöfn og hefur örugglega verið hafnað af mannananananafnanefnd oft og mörgum sinnum.” Svo hélt Jón Viður áfram að tala illa um sýninguna lengi dags, en því miður sofnaði tíðindamaður Timbur-frétta yfir því þannig að þessi frétt verður bara ekki lengri.

