Eins og kunnug er var Lilli Api með snaphat Timburmanna um helgina og er vægt til
orða tekið að sumt af því sem þar kom fram hafi ollið hneykslun viðkvæmra aðila. Lilli Api dró ekkert undan og sýndi allt úr sínu daglega lífi. Meðal annars mátti sjá hann týna af sér lýs og éta þér, þvo sér um allan skrokkinn með tungunni og síðast en ekki síst þá var hann ekki að leyna eiturlyfjaneyslu sinni, en Lilli Api, er sem kunnugt er forfallinn fíkill. Forsvarsmaður Timburmanna segir að samtökin beri enga ábyrð á því sem gerðist á snappinu, heldur beri þessi api þarna alla ábyrgð á því. Lilli Api varðist allra frétta þegar á hann var leitað og kannaðist alls ekki við að hafa komið nálægt neinu snappi alla helgina.
