
Fréttamaðurinn líttkunni, Arnar Áll Lauksson, var staðinn að því að kalla formann Timburmanna fitubollu á blaðamannafundi Timburmanna um helgina. Fundurinn var haldinn til að kynna vetrardagská Timburmanna og mættu fjölmiðlar hvaðanæva að frá norðurlöndunum, nema frá Danmörku, Svíðjóð, Noregi, Finnlanndi og Færeyjum. “Já það er rétt” – Sagði formaður Timburmanna í andstuttu viðtali. “Hann sagði að ég væri fitubolla ! Ég er ekki sáttur við þetta því ég er t.d. alls ekki feitari en ég var í síðustu viku og er í raun alls ekki of feitur, bara ca 18 cm of stuttur miðað við þyngd !” Arnar Áll hringdi í formann Timburmanna eftir fundinn og baðst afsökunar á ummælum sínum, en heyrst hefur að formaðurin hafi skellt á hann, því að hann þurfti að nota símann til að panta sér pizzu.
