Forsætisráðherfan, Jóhanna Sigurðardóttir hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um
að við Alþingishúsið verði opnaður sölubás, sem rekinn verði af fjármálaráðuneytinu fyrir hönd Íslenska ríkisins. Básinn verði með rúman og góðan opnunartíma, enda sé nauðsynlegt að hafa sveigjanleika í takt við tíðarandann. Gert er ráð fyrir því að sölubás þessi geti skapað ríkinu tugmilljarðatekjur á ársgrundvelli, þó eðlilega megi gera ráð fyrir að mest verði að gera í básnum, við hátíðlegar athafnir eins og þingsetningu og fleira. Á sölubásnum góða verða seld, egg, tómatar, gúrkur og annað lauslegt sem gott er að nota til að henda í þingmenn. Einnig verður boðið upp á rauða málningu, sleifar, potta og pönnur, og að sjálfsögðu einkar hljómgóðar tunnur á sértilboði !
