
Sá fáheyrilegi atburður hefur átt sér stað að Framsóknarflokkurinn, með hinn rammíslenska Sigmund Davíð “næstum hundrað” í broddi fylkingar, hefur keypt Bónus verslanakeðjuna.
Samkvæmt heimildum Timbur-Frétta hyggjast hinir nýju eigendur gera heilmiklar breytingar, eða eins og talsmaður þeirra sagði: “Við þurfum að íslenska þetta aðeins”.
Meðal breytinga sem þegar eru byrjaðar er að skipta út grísnum góða fyrir… auðvitað, hina íslensku sauðkind. “Já, þetta gengur ekki. Að hafa eitthvað bleikt dýr með upprúllað skott þarna sem aðalsmerki. Nú er tími hinnar íslensku sauðkindar upprunninn!”
