Sá fáheyrði atburður varð í gær að flugvél frá Iceland Express sem fljúga átti til Alicante
í gær var á áætlun og fór í loftið á návæmlega réttum tíma !!! Þetta hefur ekki gerst síðan elstu menn muna, og þykir atburður þessi vera undur og stórmerki og ekkert minna ! …Því miður voru engir farþegar um borð í flugvélinni, einfaldlega vegna þess að enginn gerði ráð fyrir að tíminn stæðist og það var enginn farþegi mættur í flugstöðina. Nýráðinn forstjóri Iceland Express, Lilli api, hefur gefið út yfirlýsingu vegna málsins og lofar því hátíðlega að þetta muni aldrei gerast aftur !
