Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarrrrrrr, hefur ákveðið að taka sig til og hlusta á fimmta hvern íbúa sem talar við sig. Þetta þykir algjör nýbreytni og í raun bylting af stjórnmálamanni. “Já það er rétt” sagði Gnarrrrrrinn í bráðfyndnu samtali við Timbur-fréttir, “Eins og allir vita kemur fullt af fólki í viðtal við borgarstjóra, og ég hef ákveðið, í stað þess að hlusta aldrei neitt á einn eða neinn, að hlusta alltaf með athygli á fimmta hvern aðila sem við mig ræðir. Að sjálfsögðu mun ég samt ekki taka mark á einu eða neinu hér eftir sem hingað til, en ég mun allavega hlusta af athygli!”
